Eru einhverjir hérna að nota Herbalife?
Ef svo er, hvernig ertu að nota það? (t.d. lauslega lýsingu á normal degi hjá þér)
Ég prófaði Herbalife fyrir stuttu síðan og fannst mjög þæginlegt að geta gripið í sjeikinn þegar ég var kannski of upptekin til þess að útbúa mér eitthvað í matinn.
Keypti líka vítamín og trefjar, en hef lítið tekið það. Einfaldlega því ég gleymi því alltaf
Svo var sjeikinn búinn og ég hef ekki keypt meira ennþá, en hugsa að ég geri það bráðlega.
Finnst þæginlegt að eiga þetta til svo ég geti gripið í þetta ef ég er í tímaþröng eða einfaldlega nenni ekki að elda mér eitthvað að geta þá gripið í þetta í staðin fyrir máltíð
Var að spá hvort það væri eitthvað fleira frá Herbalife sem væri sniðugt og vert að prófa.